Birgir Arnar­son, fram­kvæmda­stjóri áhættustýringar hjá Skaga, hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu.

Sam­kvæmt til­kynningu frá félaginu hyggst Birgir hefja störf sem með­eig­andi (e. partner) á ráðgjafa­sviði KPMG á Ís­landi og Norður­löndunum.

Birgir mun starfa hjá Skaga út apríl næst­komandi og verður í fram­haldinu félaginu innan handar í nýju hlut­verki, sam­kvæmt Skaga.

Birgir tók við starfinu í byrjun mars í fyrra en hann gegndi áður stöðu fram­kvæmda­stjóra áhættustýringar (e. Chief Risk Officer) hjá PayPal Europe og yfir­manns lausa­fjár­greiningar hjá PayPal sam­stæðunni.

Birgir starfaði einnig sem yfir­maður markaðsáhættu­greiningar (e. Head of Market Risk Analytics) á fjár­festinga­sviði alþjóð­lega tryggingafélagsins Zurich.

Birgir er með doktor­spróf í kenni­legri og hagnýtri afl­fræði frá Corn­ell-háskólanum í Bandaríkjunum. Hann er jafn­framt með próf í verðbréfa­við­skiptum.