Birna Íris Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, að því er kemur fram í tilkynningu fjármálaráðuneytisins. Starfið var auglýst í ágúst síðastliðnum og bárust upphaflega 59 umsóknir en tíu drógu umsókn sína til baka.

Birna Íris Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, að því er kemur fram í tilkynningu fjármálaráðuneytisins. Starfið var auglýst í ágúst síðastliðnum og bárust upphaflega 59 umsóknir en tíu drógu umsókn sína til baka.

Undanfarin tvö ár hefur Birna starfað við ráðgjöf á sviði stefnumótunar og upplýsingatækni, auk þess að kenna námskeið í verkefnisstjórnun á meistarastigi við Háskólann í Reykjavík.

Þar áður starfaði hún sem forstöðumaður UT reksturs og öryggis hjá Össur hf, rekstrarstjóri UT og stafrænnar þróunar hjá Högum og forstöðumaður upplýsingatækni hjá Sjóvá.

Birna Íris er tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands og er jafnframt með MBA og nám á meistarastigi í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík, auk diplómu í jákvæðri sálfræði frá EHÍ

„Efling stafrænnar þjónustu er eitt af forgangsmálum stjórnvalda og markvisst er unnið að því að viðhalda stöðu Íslands í fremstu röð í stafrænni þjónustu með tilheyrandi samfélagslegum ávinningi. Hlutverk Stafræns Íslands er að styðja við stafræna vegferð stofnana og sveitarfélaga,“ segir í tilkynningu fjármálaráðuneytisins.

Meðal verkefna Stafræns Íslands er að þróa hugbúnaðarlausnir sem styðja við umrætt hlutverk ásamt því að þróa og reka Ísland.is, Ísland.is appið, Mínar síður Ísland.is og Stafræna pósthólfið. Einnig að tryggja virkni þjónustu þvert á landamæri í alþjóðlegu samstarfi.