Birna Einarsdóttir, fyrrverandi bankastjóri Íslandsbanka á árunum 2008-2023, var kjörin nýr stjórnarformaður á nýlegum aðalfundi Húðlæknastöðvarinnar. Þetta er í fyrsta sinn sem utanaðkomandi aðili tekur sæti í stjórn stöðvarinnar.
Birna situr í stjórnum ýmissa fyrirtækja, m.a. Iceland Seafood International., Verðbréfamiðstöðvar Íslands, Kjarnafæði Norðlenska og Skeljar fjárfestingarfélagsins.
Auk Birnu tóku þær Ragna Hlín Þorleifsdóttir og Brynja Vala Bjarnadóttir einnig sæti í stjórn Húðlæknastöðvarinnar. Aðrir í stjórn Húðlæknastöðvarinnar eru Anton Örn Bjarnason og Guðlaugur Birkir Sveinsson. Allir stjórnarmeðlimir að Birnu undanskilinni eru jafnframt í eigendahópi stöðvarinnar.
Bárður Sigurgeirsson, Jón Þrándur Steinsson og Jenna Huld Eysteinsdóttir gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
Húðlæknastöðin hefur í rúman aldarfjórðung sérhæft sig í húðlækningum og fegrunarlækningum. Húðlæknastöðin segist vera ein best tækjum búna stöð sinnar tegundar á Norðurlöndum. Innan stöðvarinnar starfi margir af helstu sérfræðingum landsins á sviði húðlækninga sem og meðferða með lasertækjum og öðrum hátæknibúnaði til meðferðar á húð.