Bjarni Guðjónsson hefur verið ráðinn forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá VÍS. Hann kemur til félagsins frá KR þar sem hann hefur verið framkvæmdastjóri undanfarin þrjú ár. Bjarni hefur störf hjá VÍS í haust.

Bjarni snýr nú aftur til VÍS þar sem hann starfaði áður sem viðskipta- og sölustjóri í sjávarútvegi hjá VÍS. Hann hafði áður starfað sem sölustjóri í sjávarútvegi hjá Odda og rekstrarstjóri hjá Ellingsen.

Bjarni er þekktur fyrir feril sinn í fótbolta en hefur einnig þjálfað nokkur lið, hérlendis sem erlendis. Hann er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og ECA-gráðu í stjórnun íþróttafélaga (e. Club Management Program) ásamt þjálfaraleyfi.

„Ég hlakka virkilega til að snúa aftur til VÍS enda eru mörg spennandi verkefni fram undan. Ég hef fylgst vel með félaginu undanfarin ár og er stoltur af metnaðarfullum markmiðum þess á markaði. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum til þess að þau verði að veruleika,“ segir Bjarni Guðjónsson, forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá VÍS.

„Ég er spennt að fá Bjarna aftur í teymið enda er hann vel kunnugur félaginu. Hann er öflugur stjórnandi og góður liðsfélagi. Hann verður í lykilhlutverki að tryggja áframhaldandi vöxt til framtíðar,“ segir Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá VÍS.