Björg Kjartansdóttir hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra BHM en hún hefur víðtæka reynslu á sviði stjórnunar, reksturs og upplýsingamála. Björg kemur til BHM frá Alþjóða Rauða krossinum í Genf.

Þar stjórnaði hún fjölþjóðlegu teymi í upplýsingadeild samtakanna en hún var áður sviðsstjóri hjá Rauða krossinum á Íslandi.

„Við erum mjög ánægð að fá Björgu til liðs við okkur. Björg býr yfir fjölbreyttri reynslu af almennum og opinberum vinnumarkaði, sem stjórnandi, í almannatengslum og sérfræðingur í fjármálum stofnana og fyrirtækja,“ segir Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM.

Björg var verkefnastjóri í fjárfestingateymi KPMG, gegndi starfi fjárfestingastjóra hjá Arev verðbréfafyrirtæki og var viðskiptastjóri við MP banka. Hún var einnig fyrsti framkvæmdastjóri DeaMedica og stjórnaði uppbyggingu fyrirtækisins, sem rekur hátækniskurð- og læknastofur.

Þá starfaði hún sem sérfræðingur í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og var verkefnastjóri í frammistöðumati hjá ríkisendurskoðanda.

Björg er menntuð í sálfræði, sem félagsráðgjafi frá Háskóla Íslands, hefur lokið stjórnendamarkþjálfun og MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, auk meistaragráðu í aðferðafræði frá Maastricht University.