Hjálmar Gíslason og Kristín Pétursdóttir hafa tekið sæti í stjórn Miðeindar ehf., hugbúnaðarfyrirtækis sem vinnur að máltækni og gervigreind fyrir íslensku.
Þau mynda þriggja manna stjórn fyrirtækisins ásamt Vilhjálmi Þorsteinssyni stjórnarformanni og stofnanda Miðeindar. Linda Heimisdóttir hefur tekið við af Vilhjálmi sem framkvæmdastjóri Miðeindar, en hann starfar áfram hjá fyrirtækinu við vöruþróun og stefnumótun.
Hjálmar er stofnandi og framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins GRID en hann starfaði áður sem yfirmaður vörustjórnunar hjá Qlik í Boston. Hann stofnaði fyrirtækið DataMarket árið 2008, sem var selt til Qlik árið 2014.
Íslensk máltækni er Hjálmari ekki með öllu ókunnug, en hann smíðaði meðal annars leitarvélina Emblu fyrir mbl.is á sínum tíma og aðstoðaði við stafræna útgáfu Beygingarlýsingar íslensks nútímamáls hjá Árnastofnun.
Kristín er hagfræðingur að mennt og hefur áratuga stjórnunarreynslu úr fjármálageiranum þar sem hún var meðal annars framkvæmdastjóri fjárstýringar í Kaupþingi og aðstoðarforstjóri Kaupthing Singer & Friedlander.
Hún hefur setið setið í stjórnum fjölda fyrirtækja, Samtaka atvinnulífsins, Samtaka fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráðs, og í fjárfestingaráðum framtakssjóða. Síðustu ár hefur Kristín starfað sem stjórnunarráðgjafi og situr m.a. í stjórnum Arion banka og GRID.
Linda er með MA og PhD-gráður í málvísindum frá Cornell-háskóla og BA-gráðu í íslensku, með latínu sem undirgrein. Hún hefur áralanga reynslu úr máltæknigeiranum en undanfarin ár starfaði hún hjá alþjóðlega fyrirtækinu Appen, sem sérhæfir sig í söfnun og merkingu gagna fyrir máltækni og gervigreind.
Hún gegndi ýmsum störfum hjá Appen, nú síðast sem verkefnastofustjóri (e. Program Manager) á sviði máltækniverkefna. Linda gekk til liðs við Miðeind í byrjun árs 2023, þá sem rekstrarstjóri fyrirtækisins.
„Fram undan eru stór tækifæri og miklar áskoranir á sviði máltækni og gervigreindar enda er þróunin geysihröð á þessu spennandi sviði. Miðeind hefur nú fengið til liðs við sig sannkallað draumateymi til að móta stefnu og sækja fram, á grunni reynslu og þekkingar sem við höfum aflað í starfi okkar síðastliðin 8 ár. Ég hefði ekki getað hugsað mér öflugri liðsauka og betri liðsfélaga í sókninni en þau Hjálmar, Kristínu og Lindu,” segir Vilhjálmur Þorsteinsson, stofnandi og stjórnarformaður Miðeindar.