Gunnar Már Petersen hefur tekið við stöðu fjármálastjóra Ósa – lífæðar heilbrigðis hf. og á sama tíma hefur María Bragadóttir, fyrrum fjármálastjóri, tekið við sem framkvæmdastjóri þróunar og rekstrar.

Samkvæmt tilkynningu er breytingunum gerða til að ýta frekar undir vöxt félagsins og þróunarstarf.

María verður ábyrg fyrir þróunar- og rekstrarverkefnum hjá Ósum ásamt því að leiða innri þjónustu. Hún mun meðal annars hafa yfirumsjón með sjálfbærni, samfélagslegri ábyrgð og öryggismálum þvert á alla samstæðuna.

Hún er hjúkrunarfræðingur að mennt, með meistaranám í hagfræði frá HÍ og stjórnunargráðu frá IESE í Barcelona.

Lengst af sínum starfsferli hefur hún starfað við fjármál og viðskiptaþróun í heilsu- og lyfjafyrirtækjum. María gekk til liðs við Ósa árið 2021 sem fjármálastjóri. Áður tók hún þátt í uppbyggingu fyrirtækisins Alvogen frá stofnun og gegndi þar ýmsum stjórnunarstörfum, m.a. sem framkvæmdastjóri Alvogen á Íslandi en síðast sem VP Strategic Partner Management.

María hefur jafnframt setið í stjórn Samtaka iðnaðarins og í stýrihópi um mótun nýsköpunarstefnu fyrir Ísland.

Gunnar mun bera ábyrgð á fjármálum og upplýsingatækni samstæðunnar ásamt því að taka þátt í viðskiptaþróun Ósa. Hann hefur þá einnig tekið sæti í framkvæmdastjórn félagsins.

Hann hefur víðtæka reynslu af fjármálastjórnun, stefnumótun og viðskiptaþróun bæði á Íslandi og alþjóðlegum mörkuðum, meðal annars sem fjármálastjóri Origo-samstæðunnar (áður Nýherja) í 12 ár.

Gunnar hefur einnig gegnt lykilhlutverki hjá fyrirtækjum á borð við Iceland Express, Landic Property og Fasteignafélaginu Stoðum. Auk þess hefur Gunnar reynslu í fjármálageiranum og starfaði á þeim vettvangi á Íslandi, í Danmörku og Þýskalandi.

Hann er með M.Sc. gráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og er auk þess löggiltur verðbréfamiðlari.

„Þessar breytingar á framkvæmdastjórn endurspegla áherslur okkar á ytri vöxt og styrkingu innviða Ósa og dótturfélaga. Viðskiptaþróun fær skýrari sess innan samstæðunnar og við erum komin með öflugt teymi til að takast á við þau fjölmörgu spennandi verkefni sem eru í farvatninu,“ segir Hörður Þórhallsson, forstjóri Ósa og Icepharma.