Davíð Lúther Sigurðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri veitinga- og afþreyingastaðarins Oche Reykjavík sem er staðsettur í Kringlunni. Davið Lúther er einnig einn af eigendum staðarins.

Davíð Lúther stofnaði framleiðslufyrirtækið Silent árið 2009 sem var síðar sameinað auglýsingastofunni Sahara sem hann einnig stofnaði árið 2016.

Davíð Lúther var framkvæmdastjóri Sahara en ákvað að hætta í auglýsingageiranum á síðasta ári og söðla um. Einnig kynnti hann Íslendingum fyrir The Color Run þegar hann kom með það til landsins árið 2015 en er nú í eigu Senu Live.

Oche Reykjavík er á þriðju hæð Kringlunnar þar sem áður var Stjörnutorg. Staðurinn býður upp á upplifun og veitingar. Oche er með veitingastað, bar, einkaherbergi, 15 pílubása, 5 Shufle borð og 2 karaoke herbergi. Staðurinn tekur allt að 300 gesti í sæti í mat og drykk.

„Viðtökurnar í haust hafa verið alveg frábærar og við erum í skýjunum. Mér finnst að flest fyrirtæki landsins séu búin að koma í heimsókn nú þegar. En það eru auðvitað ýkjur af minni hálfu. En hér á Oche Reykjavík hefur verið uppbókað fimmtudaga til laugardaga síðustu 5-6 vikur. Aðrir dagar hafa verið einnig mjög fínir. Sunnudagar eru sérstakir fjölskyldudagar en lokað er á mánudögum hjá okkur," segir Davíð Lúther.

Oche er alþjóðleg veitingahúsa- og upplifunarkeðja og er staðsett í alls tíu löndum.