Edda Guðrún Sverrisdóttir hefur gengið til liðs við sjóðastýringafyrirtækið Akta sjóði sem yfirlögfræðingur og regluvörður félagsins. Greint er frá þessu á heimasíðu Akta.

Edda starfaði sem lögfræðingur hjá Kviku banka á árunum 2012-2022 og hjá Kaupþingi á árunum 2010-2012. Hún sat í stjórn Akta frá 2020-2021.

Edda hefur lokið BA prófi og meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands, öðlast réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi og lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.