Edda Kristín Óttarsdóttir, Hólmfríður Benediktsdóttir og Orri Eiríksson hafa verið ráðin til Aton og hafa öll þegar hafið störf. Edda mun sinna kvikmyndagerð, Hólmfríður hönnun og Orri hugmynda- og textasmíð.

Edda hefur áralanga reynslu af kvikmyndagerð af ýmsu tagi en hún vann meðal annars hjá 101 Productions og kom að upptökum, klippingu og eftirvinnslu. Hún hefur einnig unnið að gerð fjölda auglýsinga, tónlistarmyndbanda og heimildarmynda.

Hólmfríður útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá LHÍ árið 2022 og með meistaragráðu í leturhönnun árið 2024 frá Écal skólanum í Sviss. Hún nam einnig leturhönnun við UMPRUM skólann í Prag og árið 2020 stofnaði hún, með vinkonu sinni, grafíska hönnunarstúdíóið Lófí/Low Fee.

Orri hefur starfað við hugmynda- og textasmíð í fjölda ára, fyrst hjá Maurum auglýsingastofu og svo hjá Baklandi Creative. Hann hefur unnið með viðskiptavinum af öllum stærðum og gerðum og sinnt flestum þeim verkefnum sem snúa að hugmynda- og textavinnu og mótun skilaboða.

„Það er okkur mikið gleðiefni að geta greint frá ráðningu þessa öfluga fólks, sem þegar er farið að setja mark sitt á starfsemi Aton. Þau Edda, Hólmfríður og Orri koma úr ólíkum áttum og sinna ólíkum verkefnum en eiga það sameiginlegt að geta horft á öll verk frá nýjum hliðum og leyst úr verkefnum á skapandi og skemmtilegan hátt,“ segir Sif Jóhannsdóttir, rekstrarstjóri Aton.