Einar Geirsson hefur verið ráðinn sem forstöðumaður nýsköpunar hjá Helix en hann býr yfir víðtækri reynslu sem stjórnandi í vöruþróun og nýsköpun. Hann hefur áratuga reynslu af þróun á stafrænum lausnum á alþjóðlegum vettvangi.
Hann hefur starfað bæði í Noregi og Svíþjóð, síðast hjá heilbrigðistæknifyrirtækinu Platform24. Þar gegndi hann stöðu forstöðumanns vöruþróunar en Platform24 er eitt umsvifamesta heilbrigðistæknifyrirtæki Svíþjóðar.
„Það er virkilega spennandi að flytja heim og hefja störf hjá Helix. Þar sé ég færi á að koma með þekkingu og reynslu að utan. Það er ekki síður spennandi að fá að taka þátt í uppbyggingu og framþróun á mikilvægum lausnum fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi,“ segir Einar.
Í starfi sínu hjá Helix mun Einar stýra nýsköpunarverkefnum Helix sem snúa að því að búa til lausnir sem styðja við heilbrigðiskerfi framtíðarinnar. Einar er með M.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands
„Við erum afar ánægð að fá Einar til liðs við Helix. Hann býr yfir dýrmætri reynslu af alþjóðlegri vöruþróun og nýsköpun. Reynslan sem hann kemur með erlendis frá og sýn hans á framtíð heilbrigðistækni eru í takt við metnaðarfull markmið Helix, að hanna lausnir þar sem einstaklingurinn er í forgrunni,” segir Arna Harðardóttir, forstjóri Helix.