Viggó Ásgeirsson, einn af stofnendum Meniga, hefur verið ráðinn forstöðumaður viðskiptaþróunar á einstaklingssviði Landsbankans. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bankans.

Viggó er meðal stofnenda fjártæknifyrirtækisins Meniga og hefur síðustu 12 ár starfað þar sem framkvæmdastjóri markaðsmála, mannauðsmála og rekstrar. Áður var hann forstöðumaður markaðs- og vefdeildar hjá Landsbankanum í sex ár og forstöðumaður Vefdeildar Búnaðarbankans í þrjú ár þar á undan.

Viggó er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og B.A.-gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands.

Viðskiptaþróun greinir og leiðir umbreytingarverkefni í þjónustu bankans, hvort sem hún fer fram í appi, netbanka, útibúum eða með öðrum hætti. Þá leiðir einingin nýsköpun í vöruframboði til einstaklinga.