Eiríkur Sigurðsson hefur verið ráðinn samskiptastjóri Hugverkastofunnar en hann tekur við stöðunni af Jóni Gunnarssyni sem hefur hafið störf við Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) í Alicante. Eiríkur starfaði áður sem forstöðumaður samskiptasviðs Háskólans í Reykjavík.

Eiríkur mun meðal annars hafa umsjón með kynningar-, fræðslu- og útgáfumálum Hugverkastofunnar, sinna fjölmiðlasamskiptum og samfélagsmiðlum, ritstýra ársskýrslu og leiða vinnu við gerð samskiptaáætlunar.

Eiríkur hefur yfir tuttugu ára reynslu af almannatengslum, vísindamiðlun, vöruþróun og markaðsmálum. Hann hefur undanfarin sjö ár leitt samskiptasvið Háskólans í Reykjavík.

Frá 2010 til 2014 var hann upplýsingafulltrúi og vörumerkjastjóri ORF Líftækni, sat í framkvæmdastjórn og bar um tíma ábyrgð á hugverkavernd fyrirtækisins. Þar áður var Eiríkur ráðgjafi hjá KOM almannatengslum og kynningarstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.

Hann lauk meistaragráðu í sameindalíffræði frá Háskóla Íslands árið 1997, BSc gráðu í líffræði frá sama skóla árið 1994 og diplóma til kennsluréttinda frá Háskólanum Í Reykjavík árið 2009.

Hlutverk Hugverkastofunnar er að fara með málefni varðandi einkaleyfi, vörumerki, hönnunarvernd, byggðarmerki og önnur hliðstæð réttindi sem kveðið er á um í lögum, reglugerðum og alþjóðasamningum um vernd eignarréttinda á sviði iðnaðar. Stofnunin veitir einstaklingum, stofnunum og fyrirtækjum upplýsingar og ráðgjöf varðandi hugverkaréttindi í iðnaði og vinnur að því að ný tækni og þekking sem felst í skráðum hugverkaréttindum verði aðgengileg almenningi. Hugverkastofan heyrir undir nýtt ráðuneyti háskóla, nýsköpunar og iðnaðar.