Elín Hjálmsdóttir hefur verið ráðin mannauðs- og gæðastjóri Hörpu. Hún hefur starfað í 17 ár sem stjórnandi á sviði mannauðs- og gæðamála.

Elín starfaði lengst af hjá Eimskip, síðast sem framkvæmdastjóri mannauðssviðs, en kemur til Hörpu frá Alcoa Fjarðaál á Reyðarfirði þar sem hún var framkvæmdastjóri mannauðsmála síðastliðin tvö ár.

„Elín hefur unnið að stefnumótun til lengri og skemmri tíma og leitt áfram þróun og breytingar á sviði ráðningamála, fræðslustarfs, kjaramála, vinnustaðarmenningar, stjórnendaráðgjafar, mannauðsmælinga o.fl. Auk þess hefur hún verið í forsvari fyrir fyrirtæki og setið í samninganefndum vegna kjarasamninga,“ segir í tilkynningu Hörpu.

Elín er með BSc.í viðskiptafræði og MBA frá Háskólanum í Reykjavík auk þess að vera markþjálfi frá Coach Masters Academy (CMA) í Singapore. Elín situr í stjórn lífeyrissjóðsins Stapa.

„Ég er mjög ánægð og full tilhlökkunar að fá tækifæri til að leiða málaflokk mannauðs- og gæðamála í Hörpu. Það er gaman að starfa í húsi sem iðar af lífi alla daga enda sækir fjöldi gesta þá fjölbreyttu viðburði sem haldnir eru í Hörpu, auk þess sem fjöldi ferðamanna leggur leið sína í húsið. Ég sé líka strax að í Hörpu starfar framúrskarandi fagfólk með mikla þekkingu, ríka þjónustulund, kraft og metnað fyrir því að Harpa sé á heimsmælikvarða í viðburðahaldi og þjónustu,“ segir Elín.

Hjá Hörpu starfa tæplega 100 manns í fjölbreyttum störfum. Árlegar gestakomur eru yfir 1,2 milljónir og haldnir eru rúmlega 1.400 innlendir sem erlendir viðburðir af öllum stærðum og gerðum.