Erling Tómasson, viðskiptafræðingur og endurskoðandi, hefur verið ráðinn til að stýra rekstri og fjármálum Carbfix. Hann hefur þegar tekið til starfa, að því er kemur fram í tilkynningu.
Erling var áður meðeigandi hjá Deloitte þar sem hann sinnti fjármála- og upplýsingatækniráðgjöf, meðal annars til nýsköpunarfyrirtækja. Hjá Deloitte bar Erling m.a. ábyrgð á ráðgjöf í tengslum við kaup og sölu fyrirtækja og nýtingu upplýsingtækni til að stuðla að skilvirkum rekstri.
Erling starfaði í átta ár í Svíþjóð, sem fjármálastjóri tveggja fyrirtækja í örum vexti og síðar hjá Deloitte í Stokkhólmi. Þar áður var Erling meðeigandi hjá Deloitte Íslandi.
„Carbfix er ákaflega spennandi fyrirtæki, enda brautryðjandi í þróun nýrra lausna til varanlegrar kolefnisförgunar. Það liggur fyrir að slíkar lausnir eru nauðsynlegar til að ná loftslagsmarkmiðum heimsins og ég hlakka mjög til að taka þátt í áframhaldandi þróun fyrirtækisins,“ segir Erling.
Carbfix hefur í tíu ár, eða allt frá árinu 2012, fangað CO2 frá Hellisheiðarvirkjun, blandað það ferskvatni og dælt ofan í basaltjarðlög þar sem það umbreytist í stein með náttúrulegum efnahvörfum.
Fyrr í sumar var tilkynnt að verkefni Carbfix um Coda Terminal, móttöku- og förgunarstöð fyrir CO2 í Straumsvík, væri eitt af 17 verkefnum sem hljóta styrki upp á alls 1,8 milljarða evra frá Nýsköpunarsjóði Evrópu (Innovation Fund).