Eva Guðrún Torfadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Bakkans og kemur inn í framkvæmdastjórn Festi samstæðunnar. Eva Guðrún hefur störf í byrjun næsta árs en hún er sem stendur í fæðingarorlofi, að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Bakkinn er vöruhótel samstæðu Festi, og er hlutverk þess vöruhúsaþjónusta og dreifing til rekstrarfélaga samstæðunnar, þ.e. Elko, Krónunnar og N1, sem og annarra félaga.
Eva Guðrún hefur frá árinu 2016 starfað sem umbóta- og rekstrarráðgjafi hjá alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækinu Implement Consulting Group í Kaupmannahöfn. Mörk verkefna hennar hjá Implement sneru að endurbótum á aðfangakeðjum, m.a. endurskipulagningu, vöruhúsa og þróun innkaupaverla.
Áður starfaði hún sem innkaupa og birgðastjóri hjá Marorku á árunum 2011-2013.
Eva Guðrún er með meistaragráðu í iðnaðar- og rekstrarverkfræði frá danska tækniháskólanum DTU og B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.
„Bakkinn vöruhótel ehf. er hjartað sem dælir súrefni til rekstrarfélaga Festi í formi birgða og þjónustu við félögin. Auknar kröfur um hagkvæmni, gæði og hraða í vöruhúsarekstri kalla á stöðuga þróun starfseminnar. Eva Guðrún kemur inn með reynslu og mikla sérþekkingu á þessu sviði, sem mun reynast framþróun félagsins vel og því sterka og reynslumikla teymi sem þar starfar. Við hlökkum til samstarfsins,“ segir Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festi.