Björn Eyþór Benediktsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála hjá fasteignafélaginu Heimum frá og með 1. september næstkomandi.

Rósa Guðmundsdóttir, sem hefur gegnt starfi fjármálastjóra Heima frá árinu 2021, hefur óskað eftir því að láta af störfum til að taka við sem fjármálastjóri Eimskips.

„Ég vil þakka Rósu kærlega fyrir samstarfið og framúrskarandi framlag til uppbyggingar Heima. Það verður eftirsjá af henni og við óskum henni velfarnaðar í sínum framtíðarstörfum,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, í tilkynningu til Kauphallarinnar.

„Að sama skapi erum við afar ánægð með að fá Eyþór í nýtt hlutverk innan félagsins. Hann hefur verið lykilmaður hjá stjórnendateymi félagsins þar sem hann hefur komið að öllum stærri fjárfestingarverkefnum okkar síðustu ár og hefur leitt miðlun upplýsinga um þau til helstu haghafa. Hann er afar sterkur fjármálamaður en nýtur þess einnig að hafa breiðan bakgrunn með menntun í byggingaverkfræði og sveinspróf í húsasmíði. Það eru fáir sem búa yfir jafn mikilli innsýn og reynslu á þessum markaði og ég hlakka til að vinna með honum í nýju hlutverki.“

Eyþór hefur starfað hjá Heimum frá árinu 2014 og gegnir nú starfi forstöðumanns upplýsinga og greininga hjá fasteignafélaginu. Í því hlutverki hefur hann leitt greiningar og mat á innri og ytri fjárfestingaverkefnum félagsins, átt þátt í stefnumótun Heima og komið að undirbúningi og miðlun fjárhagslegra uppgjöra félagsins.

Hann er með meistaragráðu í reikningshaldi og endurskoðun (Macc) frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í fjármálahagfræði frá Háskóla Íslands. Þá hefur Eyþór lokið B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði og sveinsprófi í húsasmíði.