Vigdís Hauksdóttir hefur verið ráðin í nýja stöðu sem fjármálastjóri Knattspyrnufélagsins Víkings. Í starfi fjármálastjóra mun Vigdís m.a. sinna uppgjöri, reikningshaldi og fara með fjárreiður einstakra deilda sem og félagsins í heild.

Vígdís, sem er 44 ára gömul, hefur aflað sér víðtækrar reynslu af rekstri og á sviði fjármálastjórnunar, lengst af hjá Arion Banka og hjá Stefni. Hún er viðskiptafræðingur að mennt og hefur auk þess lokið meistaragráðu í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands.

Vigdís hefur einnig verið hluti af ýmsum stjórnum eða ráðum íþróttafélaga á undanförnum árum og hefur frá árinu 2018 setið í barna- og unglingaráði knattspyrnudeildar Víkings.