Ingvi Steinn Ólafsson hefur gengið til liðs við Defend Iceland sem yfirmaður vöruþróunar. Þar mun hann leiða stefnumótun og þróun netöryggislausna fyrirtækisins og styðja við uppbyggingu stafræna varna viðskiptavina.

Hann er með BSs-gráðu í hátækniverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur yfir áratugar reynslu af tækni- og hugbúnaðarþróun innan fjármála-, trygginga- og nýsköpunargeirans.

Ingvi kemur til Defend Iceland frá Arion banka þar sem hann starfaði sem tæknilegur vörustjóri og stýrði þróun og rekstri tryggingalausna hjá dótturfélaginu Vörður. Þar áður gegndi hann hlutverki vörustjóra hjá Valitor/Rapyd og leiddi þar þróun lausna og alþjóðlegra API tenginga.

„Defend Iceland stendur á spennandi tímamótum, þar sem lausnir okkar eru að festa sig í sessi sem lykilverkfæri í netöryggi stofnana og fyrirtækja. Ég hlakka til að móta framtíð vöruþróunar innan fyrirtækisins og tryggja að tæknin styðji við raunveruleg vandamál notenda,“ segir Ingvi Steinn Ólafsson, nýr yfirmaður vöruþróunar hjá Defend Iceland.

Ingvi hefur einnig reynslu sem CTO hjá nýsköpunarfyrirtækinu Kúla 3D og sem sérfræðingur í gagnagreiningu og myndvinnslu hjá Spectralis. Hann hefur unnið í bæði smáum sprotafyrirtækjum og stórum alþjóðlegum umhverfum og býr yfir djúpri þekkingu á bæði tæknilegum og skipulagslegum þáttum vöruþróunar.

„Við höfum mikla trú á að reynsla Ingva muni styrkja þá framtíðarsýn sem við höfum fyrir vöxt Defend Iceland bæði hér heima og á alþjóðavísu. Hann kemur með ómetanlega þekkingu á samþættingu flókinna tæknikerfa og notendamiðaðri vöruþróun sem mun skila sér beint í betra öryggi fyrir okkar viðskiptavini,“ segir Theódór R. Gíslason, stofnandi Defend Iceland.