Friðrik Mar Guðmunds­son, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga og framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði, hefur ákveðið að láta af störfum með haustinu eftir 19 ára starf hjá félögunum, þar af sem framkvæmdastjóri undanfarin 10 ár.

Að sögn Loðnuvinnslunnar hefur reksturinn gengið vel undir stjórn Friðriks. Eigið fé félagsins hefur fimmfaldast síðastliðin níu ár, farið úr þremur milljörðum í 15 milljarða, og hefur hagnaður vinnslunnar verið samtals 13 milljarðar.

Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga á 83% hlut í Loðnuvinnslunni og eru 350 af 750 íbúum bæjarins félagar í Kaupfélaginu. Ákvarðanir um starfsemi Loðnuvinnslunnar eru þar með teknar með fyrir augum að þær gagnist heimabyggð og eignarhaldið gerir það nær ómögulegt að selja fiskveiðiheimildir í hagnaðarskyni frá byggðarlaginu.

Nokkuð er síðan Friðrik tók þessa ákvörðun og tilkynnti hana stjórnarformönnum Loðnuvinnslunnar og Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga. Stjórnir fyrirtækjanna hafa fundað um málið og þakka Friðriki kærlega fyrir störf sín og mun Friðrik starfa áfram hjá fyrirtækjunum fram á haustið meðan leitað verður að eftirmanni hans.