Friðrik Ársælsson hefur verið ráðinn forstöðumaður lögfræðiráðgjafar Arion banka.

Um nýja stöðu er að ræða innan bankans sem heyrir undir nýjasta svið bankans, rekstur og menningu.

Friðrik hefur starfað í lögfræðiráðgjöf Arion banka frá árinu 2019, síðast sem aðstoðaryfirlögfræðingur. Þar áður var Friðrik eigandi á lögmannsstofunni Réttur og sat í stjórn Fjármálaeftirlitsins á árunum 2014-2019.

Hann er aðjúnkt við lagadeild Háskóla Íslands og hefur meðal annars annast kennslu í félagarétti, fjármálamarkaðsrétti og verið leiðbeinandi fjölda meistararitgerða við skólann. Friðrik er þá með meistaragráðu í félaga- og verðbréfamarkaðsrétti frá Harvard Law School og lögfræðigráðu frá Háskóla Íslands.