Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins var kjörinn formaður Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), á aðalfundi samtakanna í dag. Á vef mbl.is kemur fram að Grímur Sæmundsen fékk 55% atkvæða, en mótframbjóðandi hans Þórir Garðarson, stjórnarformaður Iceland Excursions, 45% atkvæða. Grímur tekur við embættinu af Árna Gunnarssyni, forstjóra Flugfélags Íslands.
- Bergþór Karlsson, framkvæmdastjóri Hölds / Bílaleigu Akureyrar
- Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia
- Eva María Þórarinsdóttir Lange, framkvæmdastýra Pink Iceland
- Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela
- Rannveig Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Hvalaskoðunar Reykjavíkur
- Anna G. Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri AGMOS ehf.