Klíníkin hefur ráðið Guðrúnu Ásu Björnsdóttir sérfræðilækni sem framkvæmdastjóra en hún mun hefja störf á nýju ári. Undanfarið eitt og hálft ár hefur hún starfað sem aðstoðarmaður Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra en lætur nú af þeim störfum.

Klíníkin hefur ráðið Guðrúnu Ásu Björnsdóttir sérfræðilækni sem framkvæmdastjóra en hún mun hefja störf á nýju ári. Undanfarið eitt og hálft ár hefur hún starfað sem aðstoðarmaður Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra en lætur nú af þeim störfum.

Sigurður Ingibergur Björnsson hefur starfað sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar frá árinu 2020. Hann lætur af framkvæmdastjórastarfinu þegar Guðrún Ása tekur við á næsta ári og mun þá taka við stjórn dótturfélags Klíníkurinnar sem þróar hugbúnaðarlausnir sem nýtast fyrirtækjum í heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að gera heilbrigðiskerfið einfaldara og skilvirkara.

Hjá Klíníkinni starfa 23 sérfræðilæknar og 47 hjúkrunarfræðingar og aðrir sérhæfðir starfsmenn. Helstu sérsvið Klíníkurinnar eru tengd bæklunarlækningum, brjóstalækningum, efnaskiptaaðgerðum, kvensjúkdómalækningum, lýtalækningum og meltingarlækningum.

„Klíníkin er með samning við Sjúkratryggingar Íslands um nokkra aðgerðarhópa og hefur unnið með stjórnvöldum við að vinna niður biðlista eftir aðgerðum, meðal annars liðskiptiaðgerðum.“

Guðrún Ása, nýr framkvæmdastjóri Klíníkurinnar, er með sérfræðilæknaleyfi í lyflækningum. Hún hefur samhliða störfum sínum sem læknir sinnt rannsóknum og kennslu við Háskóla Íslands.

Guðrún Ása er með BS-gráðu í lífefnafræði frá Háskóla Íslands, MB ChB-gráðu í læknisfræði frá Warwick-háskóla í Bretlandi og leggur stund á doktorsnám í læknisfræði við Háskóla Íslands.

Guðrún Ása var formaður Félags almennra lækna, sat í stjórn Læknafélags Íslands og útgáfustjórn Læknablaðsins árin 2018-2020. Hún sat í læknaráði Landspítalans árin 2017 2020. Hún hefur setið í ýmsum nefndum og starfshópum á vegum heilbrigðisráðuneytisins, Landspítala, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Læknafélags Íslands. Hún sat m.a. í samninganefnd Læknafélags Íslands árin 2019-2021 og var formaður samninganefndar LÍ.