Guðrún Halla Finnsdóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá Norðuráli og mun hún meðal annars leiða vinnu við raforkusamninga fyrirtækisins. Guðrún hefur starfað hjá Norðuráli frá árinu 2016, en þar áður starfaði hún hjá raforkufyrirtækinu Southern California Edison í Los Angeles. Hún er með Bsc gráðu í aðgerðarannsóknum með áherslu á fjármálaverkfræði frá Columbia háskóla og Msc gráðu í rekstrarverkfræði frá University of Southern California.

Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi og hefur framleitt ál og álblöndur frá árinu 1997. Fyrirtækið var meðal annars valið Umhverfisfyrirtæki ársins 2022 af Samtökum atvinnulífsins

„Við erum mjög ánægð með þá vinnu sem Guðrún Halla hefur unnið fyrir Norðurál, en hún hefur sinnt öllu sem við kemur raforkusamningum fyrirtækisins, tekið þátt í að móta stefnu Norðuráls í raforkumálum og borið ábyrgð á losunarheimildum fyrir viðskiptakerfi ESB. Það er því engin betur til þess fallin að taka við þessari stöðu,“ segir Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls.