Origo hefur ráðið tvo nýja forstöðumenn en það eru þau Gunnar Ingi Reykjalín Sveinsson og Ásta Ólafsdóttir. Origo veitir rekstrarþjónustu, þróar hugbúnað og er samstarfsaðili og ráðgjafi fyrirtækja í sinni stafrænni vegferð.

Gunnar hefur verið ráðinn forstöðumaður Azure skýja- og viðskiptalausna. Um er að ræða nýja stöðu á sviði hugbúnaðarlausna þar sem áhersla er lögð á heildstætt framboð Microsoft skýjalausna með tilliti til hagnýtingar gagna og samþættingu viðskiptalausna.

Hann hóf störf hjá Origo í byrjun árs 2024 sem forstöðumaður rekstrarþjónustu Origo, en fyrir það gegndi hann stöðu vörustjóra hjá Stafrænu Íslandi sem þróar og rekur vefinn Ísland.is.

Gunnar Ingi býr yfir mikilli reynslu af vöruþróun og upplýsingatæknirekstri og hefur hann stýrt stórum stafrænum umbreytingaverkefnum á 15 ára ferli sínum í upplýsingatækni.

Ásta Ólafsdóttir tekur þá við starfi Gunnars Inga sem forstöðumaður rekstrarþjónustu Origo á sviði þjónustulausna.

Hún starfaði áður sem þjónustustjóri í skýja- og netrekstri hjá Origo og hefur víðtæka reynslu frá sölu- og þjónustustjórnun. Ásta starfaði hjá Nova yfir níu ára tímabil og hefur einnig starfað hjá Landsbankanum og Hreyfingu heilsulind.