Gunnar B. Sigurgeirsson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Örnu ehf. en hann tekur við starfinu af Hálfdáni Óskarssyni, stofnanda félagsins, sem lætur nú af starfi framkvæmdastjóra að eigin ósk.
Hálfdán mun þá sitja áfram í framkvæmdastjórn og leiða framleiðslu og vöruþróun félagsins í Bolungarvík.
Gunnar kemur með víðtæka reynslu úr rekstri leiðandi fyrirtækja á matvælamarkaði en hann starfaði hjá Ölgerðinni í 16 ár, fyrst sem framkvæmdastjóri markaðssviðs en síðar sem aðstoðarforstjóri.
Þar sinnti Gunnar fjölbreyttum verkefnum, m.a. uppbyggingu eigin vörumerkja félagsins. Fyrir það starfaði hann sem markaðs- og sölustjóri Nóa Síríusar.
„Það gleður mig að bjóða Gunnar velkominn til starfa sem framkvæmdastjóra Örnu. Gunnar hefur sýnt í sínum fyrri störfum að hann er öflugur leiðtogi með mikla þekkingu úr matvælageiranum. Þekking hans og reynsla mun styrkja félagið í áframhaldandi vexti á mjólkurmarkaði,“ segir Hálfdán Óskarsson.
Gunnar er með B.Sc. gráðu í matvælafræði og M.Sc. gráðu í hagfræði.
„Arna hefur náð frábærum árangri á krefjandi markaði. Saga fyrirtækisins er virkilega skemmtileg og Hálfdán og samstarfsfólk hans hafa sýnt mikla framsýni og dugnað við að byggja það upp, m.a. með framúrskarandi vöruþróunarstarfi. Ég er fullur tilhlökkunar til að vinna með stjórn og starfsfólki Örnu að framgangi félagsins,“ segir Gunnar B. Sigurgeirsson.
Arna hóf framleiðslu á mjólkurvörum í Bolungarvík árið 2013. Fyrirtækið er nú með framleiðslu í Bolungarvík og starfsstöð á Tunguhálsi í Reykjavík og hjá því starfa um 40 manns.