Valgerður Hrund Skúladóttir, einn af stofnendum Sensa og framkvæmdastjóri frá upphafi, hefur ákveðið að láta af störfum þann 31. ágúst næstkomandi. Hún mun þó ekki alfarið segja skilið við félagið, heldur taka sæti í stjórn Sensa.
Guðmundur Stefán Björnsson, sem hefur gegnt stöðu öryggisstjóra og verið leiðtogi upplýsingatæknimála, tekur við sem framkvæmdastjóri 1. september.
Frá stofnun félagsins árið 2002 hefur Valgerður verið í lykilhlutverki í uppbyggingu og þróun fyrirtækisins. Sensa velti 6,3 milljörðum króna árið 2023, samkvæmt síðasta birta ársreikningi félagsins.
„Undir hennar forystu hefur Sensa vaxið og dafnað, og er í dag 160 manna þjónustufyrirtæki, með starfsfólk í 12 löndum, sem sérhæfir sig í hýsingar- og rekstrarþjónustu, innviðalausnum og sérfræðiþjónustu fyrir fyrirtæki,“ segir í fréttatilkynningu.
Síminn keypti Sensa árið 2007 og seldi það svo alþjóðlega upplýsingatæknifyrirtækinu Crayon, árið 2020, sem er eigandi þess í dag.
„Þegar ég lít til baka á þessa 23 ára vegferð með Sensa, fyllist ég stolti yfir því sem við höfum skapað saman. Það hefur verið ómetanlegt að vinna með frábæru teymi sem hefur sýnt ótrúlega elju og sköpunargleði,“ segir Valgerður.
„Nú er rétti tíminn til að afhenda keflið til Guðmundar Stefáns, sem ég treysti til að leiða fyrirtækið inn í næsta kafla með nýjum hugmyndum og krafti. Það krefst hugrekkis að takast á við ný hlutverk og breyta hlutunum - því það er svo mikilvægt í okkar bransa. Ég hlakka til að fylgjast með áframhaldandi vexti og árangri Sensa.“
Guðmundur Stefán hefur verið stjórnandi hjá Sensa í 10 ár og var þar áður starfsmaður og stjórnandi hjá Símanum í 18 ár, þar af 5 ár í framkvæmdastjórn.
„Ég er afar þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt og hlakka til að takast á við nýtt hlutverk. Sensa er einstakt fyrirtæki og hefur á að skipa öflugum hópi starfsfólks. Ég tek við góðu búi og eru tækifæri fjölmörg fram undan fyrir frekari vöxt og framþróun,“ segir Guðmundur Stefán.

Steingrímur verður öryggisstjóri
Samhliða framkvæmdastjóraskiptunum mun Steingrímur Óskarsson taka við sem öryggisstjóri Sensa.
Steingrímur hefur starfað í tæknigeiranum í yfir 25 ár og sinnt bæði rekstri og ráðgjöf. Undanfarin ár hefur hann starfað innan Sensa við viðskiptaþróun og ráðgjöf til lykilviðskiptavina.
