Sesselía Birgisdóttir, sem hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra Vodafone fjarskipta frá því í apríl 2022 og sat í stjórn Sýnar fyrir það um árabil, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Frá þessu greinir Sýn í tilkynningu.

Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar, segir að Sesselía verði félaginu áfram innan handar þar til að eftirmaður hennar verður ráðinn.

„Sesselía hefur á undangengnum árum starfað ötullega með teymi sínu að sölu-, þjónustu og markaðsmálum fjarskiptareksturs Sýnar hf.,“ segir Herdísi í tilkynningunni. „Við þökkum Sesselíu fyrir mikilvægt framlag í þágu félagsins og óskum henni velfarnaðar.“

„Sýn er frábært félag og hef ég leitt ákveðnar breytingar innan Vodafone fjarskipta síðustu ár með því góða fólki sem þar starfar. Ég er mjög stolt af þeim árangri sem að náðst hefur á því tímabili og þeirri mikilvægu þjónustu sem fyrirtækið veitir viðskiptavinum sínum bæði í fjarskiptum og fjölmiðlun á degi hverjum. Ég óska félaginu alls hins besta og þakka samstarfið“ segir Sesselía Birgisdóttir.