Hafrún Sif Sveinsdóttir hefur verið ráðin til Mílu og mun leiða þjónustu og upplifun fyrirtækisins. Í hlutverki sínu mun Hafrún hafa umsjón með öllum þjónustuferlum Mílu sem snúa að viðskiptavinum.
Í tilkynningu segir að Hafrún muni sjá til þess að vinnulag og ferlar séu skilgreindir, markmið sett og að árangur hjá fyrirtækinu verði mældur.
Hafrún starfaði áður hjá Nova í átta ár, meðal annars sem vöru- og verkefnastjóri og síðar þjónustuleiðtogi. Hún er með meistaragráðu í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands og hefur síðustu mánuði starfað með Mílu að umbótaverkefnum þvert á deildir.
„Við erum mjög spennt að fá Hafrúnu til liðs við okkur í þetta mikilvæga hlutverk. Reynsla hennar og hæfni til að leiða og bæta þjónustu viðskiptavina gerir hana að ómetanlega verðmæta fyrir Mílu og við erum spennt að gera enn betur í upplifun viðskiptavina okkar,“ segir Ingvar Bjarnason, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu.