Haukur Hinriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Knattspyrnufélagsins Víkings. Haukur sem er 34 ára hefur starfað sem yfirlögfræðingur KSÍ undanfarin 9 ár.

Haukur tekur við stöðunni af Haraldi Haraldssyni sem hefur verið framkvæmdastjóri félagsins undanfarin 14 ár.

Sem yfirlögfræðingur KSÍ hefur Haukur m.a. unnið að verkefnum sem snúa m.a. að leyfismálum, aga- og kærumálum, lögum og reglugerðum, leikmannasamningum og umboðsmönnum leikmanna, svo eitthvað sé nefnt.

Haukur útskrifaðist með BA gráðu og Meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík en hann stundaði einnig nám við Université de Cergy Pontoise í París. Hann lauk einnig LL.M. námi í alþjóðlegri samninga- og gerðardómsrétti frá University of Fribourg, Sviss. Hann stundar nú nám í viðskiptafræði MM í stjórnun við Háskólann á Akureyri.

„Við erum gríðarlega ánægð með þessa ráðningu og bjóðum Hauk hjartanlega velkominn til Víkings. Haukur var valinn úr hópi margra mjög hæfra einstaklinga sem sóttu um stöðuna í mjög faglegu ferli sem félagið fór í við val á framkvæmdarstjóra,“ segir Björn Einarsson, formaður Knattspyrnufélagsins Víkings.

„Haukur þekkir vel til íþróttalífs hér á landi eftir farsælt starf hjá KSÍ auk þess sem mikil reynsla hans af þeim vettvangi mun nýtast félaginu afar vel í sínum næstu skrefum og framtíðarsýn. Knattspyrnufélagið Víkingur hugsar hátt og hefur metnaðarfull markmið. Það er mjög spennandi vegferð og tímar framundan hjá félaginu okkar.“