Kristjana Þórdís Jónsdóttir er nýr forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen en hún tók formlega við stöðunni í síðasta mánuði. Hún hefur þó verið tengd fyrirtækinu og starfsemi þess allt sitt líf í gegnum fjölskylduna.

Pabbi Kristjönu hafði starfað hjá samstæðunni síðan hún var eins árs og hóf svo Kristjana sumarstörf hjá fyrirtækinu eftir að amma hennar og nafna, Þórdís Ingvarsdóttir, lét af störfum. Hún fetaði þá í fótspor hennar sem litla Dísa, eins og hún var kölluð.

„Stefnan var fyrst sett á íþróttafræði og tók ég þann áfanga í eitt ár. Þegar ég var búin að vera í hlutastarfi með íþróttafræðinni í eitt ár fann ég að ég vildi frekar fara í viðskiptafræði þar sem ég hafði fengið mikinn áhuga á flutningum og þessum bransa.“

Kristjana ákvað þá að breyta um nám og fékk áframhaldandi vinnu með skóla. Hún prufaði sig áfram innan TVG-Zimsen í mismunandi stöðum og öðlaðist mikla reynslu við það. Eftir útskrift fór hún svo að vinna 100% hjá fyrirtækinu.

Nánar er fjallað um Kristjönu í Viðskiptablaði vikunnar. Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér.