Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, fjármálastjóri Samkaupa, verður starfandi forstjóri fyrirtækisins þar til sameining við Orkuna er yfirstaðin, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Gunnar Egill Sigurðsson hefur látið af störfum sem forstjóri eftir 23 ár hjá fyrirtækinu.

Tilkynnt var um kaup Orkunnar á hlutum Kaupfélags Suðurnesja fyrr í mánuðinum en áætlað er að þau gangi í gegn um leið og öllum fyrirvörum hefur verið aflétt. Í framhaldi er stefnt að því að til verði eignarhaldsfélag sem starfi á sviði matvöru, orku, bílaþvottar og lyfsölu.

Heiður mun stýra fyrirtækinu í samvinnu við aðra í framkvæmdastjórn.

„Kaupin eru jákvætt skref fyrir Samkaup. Þau styrkja stöðu fyrirtækisins og munu opna á tækifæri fyrir okkur til að bjóða betri verð og þjónustu fyrir okkar viðskiptavini. Við erum þakklát Gunnari Agli fyrir hans störf, en hann á mjög stóran þátt í vexti og þróun fyrirtækisins,“ segir Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, nýr forstjóri Samkaupa.

Heiður Björk hefur starfað sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Samkaupa undanfarin 5 ár. Hún hefur reynslu á sviði fjármála og hefur lokið MBA námi við Háskóla Íslands, er með BSc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og próf í verðbréfaviðskiptum.

Gunnar Egill kveður eftir 23 ár

Gunnar Egill tilkynnti fyrr í þessum mánuði að hann hefði ákveðið að láta af störfum hjá félaginu.

„Ég er afar þakklátur fyrir öll tuttugu og þrjú árin sem ég hef starfað hjá Samkaupum og er stoltur af þeim árangri sem við höfum náð á smásölumarkaði um allt land,” segir Gunnar Egill.

„Sá árangur er aðeins til kominn vegna þess að hjá Samkaupum starfar einvala lið stjórnenda og starfsfólks með metnað fyrir starfinu og drifkraftinn sem þarf til að ná settum markmiðum. Kaupin opni nú ný tækifæri til að byggja upp enn sterkara og betra félag og ég hlakka til að fylgjast með framvindunni. Samkaup er í traustum höndum Heiðar og teymisins hennar.”