Helga Dagný Sigurjónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Icepharma Velferð, nýs sviðs innan Icepharma. Hún tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn Icepharma og móðurfélagsins Ósa – lífæðar heilbrigðis hf.

Icepharma er fyrirtæki á sviði lyfja og heilbrigðisvara á Íslandi sem stofnað var árið 1919. Fyrirtækið er dótturfélag Ósa – lífæðar heilbrigðis hf. en Ósar veita dótturfélögunum stoðþjónustu á sviði fjármála, upplýsingatækni, mannauðsmála og markaðsmála.

Með nýja sviðinu ætlar Icepharma að leggja meiri áherslu á snjallar lausnir og mun Icepharma Velferð leiða uppbyggingu á velferðartækni innan félagsins.

Helga Dagný starfaði áður sem deildarstjóri velferðartækni innan Heilbrigðissviðs Icepharma og hefur undanfarin ár stýrt teymi sem hefur unnið að því að innleiða snjallar lausnir í heilbrigðiskerfinu.

Hún er hjúkrunarfræðingur að mennt og hóf feril sinn á Rigshospitalet í Kaupmannahöfn. Eftir flutninga aftur til Íslands tók hún við starfi viðskiptastjóra á Heilbrigðissviði, þar sem hún bar ábyrgð á sölu og markaðssetningu lækningatækja.

Helga er jafnframt meðstofnandi íslensks heilbrigðistæknifyrirtækis sem vinnur að hátækni- og gervigreindarlausn til að draga úr spítalasýkingum. Hún hefur lokið alþjóðlegri vottun í verkefnastjórnun og er með Executive MBA-próf.

„Frá því Helga Dagný hóf störf hjá Icepharma hefur hún leitt fjölbreytt verkefni á sviði viðskiptaþróunar og gegnt margvíslegum hlutverkum innan fyrirtækisins. Hún hefur brennandi áhuga á framþróun í heilbrigðiskerfinu og litið á heilbrigðis- og velferðartækni sem lykilþátt í að mæta þeim áskorunum sem kerfið stendur frammi fyrir. Helga leggur ríka áherslu á að ný tækni stuðli ekki aðeins að betri heilsu, auknu öryggi og bættum lífsgæðum heldur sé einnig stuðningur fyrir heilbrigðisstarfsfólk í sínum mikilvægu störfum,“ segir Hörður Þórhallsson, forstjóri Icepharma og Ósa.