Hersir Aron Ólafsson og Steindór Emil Sigurðsson hafa verið ráðnir til Símans. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Hersir Aron Ólafsson hefur verið ráðinn forstöðumaður samskipta og fjárfestatengsla hjá Símanum. Auk þess verður hann aðstoðarmaður forstjóra og mun vinna með framkvæmdastjórn að innleiðingu nýrrar stefnu félagsins ásamt áframhaldandi þróun og vexti.

Hersir er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Undanfarin ár hefur hann starfað sem aðstoðarmaður forsætis-, utanríkis- og fjármálaráðherra. Áður starfaði Hersir meðal annars sem lögfræðingur Ölmu íbúðafélags, hjá LOGOS lögmannsþjónustu og sem fréttamaður og þáttastjórnandi á Stöð 2 og mbl.is.

Steindór Emil Sigurðsson hefur tekið við stöðu forstöðumanns viðskiptaþróunar og vörustýringar á fyrirtækjamarkaði og mun þar leiða uppbyggingu fyrirtækjalausna Símans. Deildin er ný innan félagsins, í samræmi við áherslu á að fjölga og bæta enn frekar framboð stafrænna lausna til fyrirtækja.

Steindór er með M.Sc. gráðu í verkfræði frá DTU í Danmörku og hefur 25 ára reynslu af sérfræði- og stjórnunarstörfum innan nýsköpunar og vöruþróunar. Steindór kemur frá Controlant þar sem hann var lengst af í hlutverki forstöðumanns þróunar, en áður starfaði hann hjá Marorku, Símanum, Industria og Nokia.

Síminn gekk í fyrra frá kaupum á Billboard, Noona Iceland og lánasafni Valitor. Tekjur samstæðunnar jukust um 8% á liðnu ári og EBITDA um rúmlega 16%. Síminn hefur boðað að enn frekari áhersla verði lögð á vöru- og viðskiptaþróun í rekstri félagsins á komandi misserum, bæði á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði.