Hildur Rún Guðjónsdóttir hefur verið ráðin til Plaio sem framkvæmdastjóri árangursdrifinna viðskiptatengsla (e. VP of Customer Success). Hún mun stýra innleiðingum á hugbúnaðarkerfi Plaio ásamt því að tryggja velgengni viðskiptavina.

Hildur Rún kemur frá Deloitte þar sem hún starfaði undanfarin ár sem verkefnastjóri á sviði viðskiptalausna. Hún er reyndur ráðgjafi með þekkingu á ferlagreiningu og sjálfvirknivæðingu ferla. Hildur Rún er með M.Sc. og B.Sc. gráðu í Rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

„Plaio er í vaxtarfasa og við sjáum fram á mikinn vöxt á næstu misserum. Innleiðing á kerfi Plaio til viðskiptavina skiptir gríðarlega miklu máli og það er mikill fengur að fá jafn öfluga manneskju eins og Hildi til að styðja viðskiptavini okkar í því ferli. Hún verður lykilmaður í uppbyggingu Plaio á alþjóðavísu,“ segir Jóhann Guðbjargarson, framkvæmdastjóri Plaio.

Fyrirtækið þróar hugbúnað fyrir framleiðslustýringu og áætlanagerð lyfjafyrirtækja, sem stuðlar að hagræðingu í rekstri og bættri nýtingu aðfanga. Hugbúnaðurinn býður upp á notendavæna framsetningu gagna og upplýsinga, gefur aukna yfirsýn í samanburði við eldri kerfi, og nýtir m.a. gervigreind til að bæta ákvarðanatöku.