Stjórn Eikar fasteignafélags hf. ákvað á fundi sínum í dag að ráða Hreiðar Má Hermannsson í starf forstjóra félagsins. Hann tekur við starfinu af Garðari Hannesi Friðjónssyni sem leitt hefur félagið og byggt upp undanfarin 22 ár.

Hreiðar Már er með B.A.-gráðu í fjármálum frá London South Bank University Business School og M.Sc.-gráðu í fjármálum, fjárfestingum og bankastarfsemi frá sama skóla.

„Við erum afar ánægð með að fá Hreiðar Má til liðs við okkar öfluga félag og hlökkum til samstarfsins. Við teljum að reynsla hans og framtíðarsýn muni styrkja stöðu félagsins á markaði og styðja við áframhaldandi arðbæran vöxt og þróun þess,“ segir Bjarni K. Þorvarðarson, stjórnarformaður Eikar fasteignafélags.

Hreiðar Már hefur víðtæka reynslu af fjárfestinga- og fjármálastarfsemi en hann kemur til Eikar frá Arion banka þar sem hann gegndi stöðu forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar á fyrirtækja og fjárfestingabankasviði. Áður hafði Hreiðar Már starfað við útlánastarfsemi til fyrirtækja, eignastýringu og ráðgjöf í 20 ár.

„Eik er spennandi fyrirtæki, sem starfar á markaði sem mun vaxa og taka breytingum á komandi misserum. Efnahagur félagsins er fyrna sterkur auk þess sem það atvinnuhúsnæði og þeir þróunarmöguleikar sem eru nú þegar á efnahagsreikningnum eru mjög áhugaverðir,“ segir Hreiðar Már.