Íris Björk Hreinsdóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) og hefur þegar hafið störf. Hún hefur mikla þekkingu og reynslu af fjölbreyttum hliðum fjármálamarkaðar og atvinnulífinu.
Hún tekur við starfinu af Jónu Björk Guðnadóttur yfirlögfræðingi, sem hefur starfað hjá SFF í 17 ár, en mun hefja störf hjá Landsbankanum.
Íris er menntaður lögfræðingur, með málflutningsréttindi og Fulbright og Cobb styrkþegi með LL.M. frá University of Miami.
„Ég fer full tilhlökkunar inn í nýtt starf og með reynslu mína úr fjármálageiranum bý ég að góðum grunni til að takast á við fjölbreytt verkefni samtakanna. Ég er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt og spennt fyrir að takast á við þetta ábyrgðarmikla hlutverk,“ segir Íris.
Undanfarin ár hefur Íris sinnt ráðgjöf við fyrirtæki, stofnanir og hið opinbera, auk þess að vera formaður Úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki.
Hún starfaði jafnframt sem lögmaður hjá Arion banka í fjölbreyttum verkefnum á skrifstofu bankastjóra og lögfræðisviði í rúman áratug.
„Það er mikill fengur að fá Írisi til liðs við samhentan hóp starfsmanna hjá Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Hún hefur verðmæta og yfirgripsmikla þekkingu á málaflokknum og hefur í gegnum störf sín skapað sér gott og traust orðspor,“ segir Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF.