Jóhann Jónasson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Sameyjar Robotics í Garðabæ og mun hann taka við starfinu í byrjun næsta árs.

Jóhann er einn af stofnendum 3X Technology á Ísafirði sem sameinaðist Skaganum árið 2017. Hann tók einnig þátt í uppbyggingu Deilis Tækniþjónustu ehf í Mosfellsbæ. Jóhann er menntaður iðnrekstrarfræðingur og með meistarapróf í viðskiptafræði og stjórnun frá HR.

„Samey Robotics er vel rekið félag og ört vaxandi, sannkölluð sjálfvirknimiðstöð og munum við í sameiningu vinna áfram í að vera eftirsóknarverður vinnustaður með öflugan mannauð sem vinnur að spennandi verkefnum. Við erum talsmenn stöðugra umbóta í verkferlum okkar viðskiptavina með því að afhenda tæknilausnir sem auka framleiðni og rekstrarhagkvæmni og bæta um leið gæði afurðanna, á þann hátt sköpum við aukið virði,“ segir Jóhann í tilkynningu.

„Það eru mikil tækifæri til vaxtar á þeim mörkuðum sem við erum á td. Í laxeldinu, og í hvítfiskinum, auk þess höfum við uppá að bjóða fjölbreyttar lausnir fyrir annan iðnað á íslandi svo sem til rafverktaka og aðra sem vinna að sjálfvirknivæðingu.“

Samey Robotics hefur í yfir 33 ár sérhæft sig í sjálfvirknivæðingu íslensks iðnaðar og notkun þjarka í sjálfvirkni. Höfuðstöðvar Sameyjar eru í Garðabæ. Þar starfa 31 starfsmann ásamt alþjóðlegu neti þjónustuaðila. Á sjötta hundrað verksmiðjur og vinnslur í 25 löndum starfa í dag með kerfum frá Samey Robotics.

Haraldur verður rannsóknar- og þróunarstjóri

Haraldur Þorkelsson hefur verið framkvæmdastóri Samey Robotics síðan 2012 og mun hann taka við nýju starfi rannsóknar- og þróunarstjóra félagsins við uppbyggingu nýrra sjálfvirknilausna fyrir viðskiptavini félagsins.

„Við horfum bjartsýn fram á veginn enda er pantanastaða félagsins með besta móti, með yfir 60 róbotarkerfi í pöntun“, segir Haraldur.

Haraldur Þorkelsson
Haraldur Þorkelsson

Samey Robotics er í jafnri eigu LVG Holding, félags Kristjáns Karls Aðal­steins­son­ar og Vyg­andas Srebalius og Sjávarsýnar ehf fé­lag sem er í eigu Bjarna Ármanns­son­ar, og er hann einnig Stjórnarformaður Samey Robotics.