KLAK - Icelandic Startups hefur ráðið til sín tvo nýja starfsmenn en það eru þau Jóhanna Soffía Sigurðardóttir og Atli Björgvins. Þau eru bæði með breiðan bakgrunn og fjölbreytta reynslu sem mun gagnast uppbyggingu KLAK.

Jóhanna Soffía Sigurðardóttir er með mikla reynslu í fjármálum og verkefnastjórnun og hefur unnið við stefnumótun, þróun og tengslamyndun innan fyrirtækja og stofnana.

Hún hefur einnig reynslu af ráðgjöf og kennslu, auk þess að hafa gegnt lykilhlutverki í ýmsum þróunarverkefnum á íslenskum vinnumarkaði.

Atli Björgvins hefur áralanga reynslu af markaðs- og frumkvöðlastarfi, auk þess að hafa sinnt kennslu í nýsköpun og markaðsfræðum við Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Bifröst.

Hann hefur komið að fjölbreyttum verkefnum innan sprotafyrirtækja og hefur unnið sem ráðgjafi í markaðssetningu fyrir bæði innlend og alþjóðleg fyrirtæki. Með Jóhönnu og Atla um borð mun KLAK styrkja stöðu sína enn betur og veita enn betri stuðning til þeirra sprota sem það þjónar.