Landsnet hefur ráðið Jóhannes Þorleiksson í starf framkvæmdastjóra upplýsingagreindar og – tækni þar sem hann mun fara fyrir hópi sem ber ábyrgð á þróun gagnadrifinnar þjónustu, upplýsingaöryggi og rekstri upplýsingakerfa Landsnets.

Í tilkynningu segir að ráðning Jóhannesar sé hluti af þeirri vegferð sem Landsnet sé á þar sem nýjar aðferðir eru notaðar til að takast á við breytta tíma. Þar segir að víðtækir gagnabankar séu einn af lykilþáttunum í átt að orkuskiptunum.

„Ég hlakka til að takast á við þau verkefni sem bíða mín hjá Landsneti þar sem eru ótrúlega spennandi hlutir að gerast. Hjá Landsneti starfar flottur hópur sem ég þekki vel til og það verður frábært að fá tækifæri til að leiða upplýsingagreind – og tækni áfram inn í framtíðina,“ segir Jóhannes.

Jóhannes Þorleiksson er með M.Sc. gráðu í raforkuverkfræði frá Chalmers Tekniska Högskola í Svíþjóð. Hann starfaði áður sem forstöðumaður rafveitu hjá Veitum frá 2019 til 2024 þar sem hann sat í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Hann var einnig framkvæmdastjóri Norconsult á Íslandi 2017-2019 og hefur einnig víðtæka reynslu af ráðgjafastörfum á sviði raforku og kerfisgreiningum ásamt öryggismálum.