Jón Cleon hefur verið ráðinn forstöðumaður markaðsmála hjá N1 og hefur þegar hafið störf. Hann hefur víðtæka reynslu í markaðsmálum og leggur áherslu á að tengja saman vörumerkjastjórnun og heildstæða upplifun viðskiptavina.
Á undanförnum árum hefur Jón komið að umbreytingum í markaðsstarfi og þjónustuupplifun í ólíkum greinum atvinnulífsin.
„Það sem heillaði mig við N1 er hversu stóran sess fyrirtækið á í daglegu lífi fólks og fyrirtækja. Það er rótgróið á íslenskum markaði og fjölda tækifæra framundan sem ég er spenntur að takast á við með öflugu fólki,“ segir Jón Cleon.
Hann hefur einnig starfað hjá Landsvirkjun og nú síðast hjá Isavia. Þar leiddi hann uppbyggingu og innleiðingu nýrrar markaðs- og upplifunarstefnu fyrir Keflavíkurflugvöll og þróun vörumerkisins KEF.
„Við erum virkilega ánægð með að fá Jón til liðs við okkur, enda með dýrmæta reynslu, skýra sýn og sterka tilfinningu fyrir því hvernig markaðsmál, þjónusta og upplifun tengjast. Við höfum sett okkur metnaðarfull markmið í þessum efnum og ráðning Jóns er eitt af lykilskrefunum í þeirri vegferð,“ segir Magnús Hafliðason, framkvæmdastjóri N1.