Jón Ingi Árnason, Jón Eggert Hallsson og Valdimar Ármann hafa tekið við nýjum stöðum hjá Arctica Finance, en sá fyrstnefndi tekur við forstöðu eftir ársstarf hjá félaginu og sá síðastnefndi færir sig milli deilda eftir svipað langt starf.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Jón Ingi hefur starfað sem miðlari í Markaðsviðskiptum Arctica Finance síðan í ársbyrjun 2020. Hann hefur reynslu af störfum á fjármálamarkaði, en áður en Jón Ingi hóf störf í Markaðsviðskiptum Arctica Finance starfaði hann m.a. í markaðsviðskiptum Landsbankans, Kviku og Straums. Jón Ingi er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið löggildingu í verðbréfamiðlun.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Jón Eggert er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið löggildingu í verðbréfamiðlun.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Áður en Valdimar hóf störf hjá Markaðsviðskiptum Arctica Finance í ársbyrjun 2020 hafði hann unnið hjá GAMMA, fyrst sem framkvæmdastjóri sjóða og síðar sem framkvæmdastjóri. Áður en Valdimar hóf störf hjá GAMMA starfaði hann um 7 ára skeið í London og New York, fyrst hjá ABN AMRO og síðar hjá Royal Bank of Scotland.
Valdimar er hagfræðingur frá Háskóla Íslands, með MSc gráðu í fjármálaverkfræði frá ICMA Centre, University of Reading í Bretlandi og löggildingu í verðbréfamiðlun.