Jón Júlíus Karlsson hefur verið ráðinn til starfa hjá Viðskiptaráði og mun annast verkefni á sviði samskipta, miðlunar og viðburðahalds auk þátttöku í málefnastarfi og annarri daglegri starfsemi ráðsins.
Hann er með BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið meistaraprófi í opinberri stjórnsýslu frá sama skóla.
Frá árinu 2017 hefur Jón starfað á vettvangi ungmennafélaga, fyrst sem framkvæmdastjóri Aftureldingar um þriggja ára skeið en undanfarin þrjú ár hefur hann gegnt starfi framkvæmdastjóra Ungmennafélags Grindavíkur. Áður starfaði hann meðal annars sem fréttamaður á Stöð 2 og stýrði markaðs- og viðburðamálum hjá Golfklúbbnum Oddi.
Jón mun hefja störf í október og tekur við starfinu af Gunnlaugi Braga Björnssyni sem á sama tíma hverfur til nýrra starfa á markaðssamskiptasviði Íslandsstofu.