Katrín M. Guðjónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Greint er frá ráðningu hennar í fréttatilkynningu.

Þar segir að hlutverk Katrínar hjá SSNV sé að byggja upp samfélagið á Norðurlandi vestra í samstarfi við sveitafélög og sveitastjóra á svæðinu. Sveitafélögin sem um ræðir séu Húnaþing vestra, Húnabyggð, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagaströnd og Skagafjörður.

„Katrín er viðskipta- og markaðsfræðingur með MBA gráðu frá Háskóla Íslands. Katrín hefur yfirgripsmikla reynslu sem stjórnandi og víðtæka reynslu úr atvinnulífinu hér á landi og í alþjóðaumhverfinu. Undanfarin ár hefur hún stýrt markaðs- og sölusviði Men&Mice og stýrt þar markaðssókn beggja vegna Atlantshafsins. Þar áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri hjá fjártæknifyrirtækinu Alva, markaðsstjóri olíufélaganna N1 og Skeljungs, og hjá heildversluninni Innnes auk þess að starfa að markaðsmálum fyrir Símann,“ segir um Katrínu í fréttatilkynningu.

„Við erum afar ánægð með að fá Katrínu til liðs við okkar öfluga starfsmannahóp hjá SSNV. Starfsemi samtakanna er sveitarfélögunum á starfssvæðinu mikilvægur samstarfsvettvangur og sterkur hlekkur í þróun og eflingu landshlutans. Reynsla og bakgrunnur Katrínar mun nýtast vel í því verkefni,“ segir Guðmundur Haukur Jakobsson, formaður stjórnar SSNV, í fréttatilkynningu.

„Ég tek nýrri áskorun fagnandi og hlakka til að takast á við fjölbreyttar og skemmtilegar áskoranir. Norðurland vestra á heilmikið inni sem landshluti. Að starfa fyrir samfélag og yfir 7500 íbúa er mikil hvatning,“ er haft eftir Katrínu M. Guðjónsdóttur, nýráðnum framkvæmdastjóra SSNV.