Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Wise. Hún mun leiða sölu- og markaðssvið félagsins með það að markmiði að styðja við vöxt og framtíðarsýn Wise á innlendum markaði.
Hún kemur til Wise með víðtæka reynslu af sölu- og markaðsstarfi, meðal annars hjá Frjálsri fjölmiðlun, Billboard og nú síðast Sýn. Þar gegndi hún lykilhlutverki í uppbyggingu teyma og stefnumótandi verkefnum á sviði sölu og tekjuöflunar.
„Kolbrún hefur sterka innsýn í sölu- og markaðsstarf og í hvernig styðja megi við vöxt og betri upplifun viðskiptavina. Hún er mikilvæg viðbót við stjórnendateymið og kemur inn með mikla reynslu og kraft sem mun nýtast vel við að þróa enn frekar nálgun okkar gagnvart markaðnum og styrkja stöðu Wise til framtíðar,“ segir Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise.
Kolbrún er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands og lauk viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík.
„Wise er á fleygiferð inn í framtíðina og býður nú heildstætt lausnaframboð á sviði upplýsingatækni til að styðja viðskiptavini í þeirra stafrænu umbreytingu. Ég er mjög þakklát fyrir tækifærið og hlakka mikið til að taka þátt í þeirri spennandi þróun sem á sér stað hjá Wise,“ segir Kolbrún.