Kristín Hildur Ragnarsdóttir hefur verið ráðin til starfa hjá Íslandsbanka og mun leiða vöruþróun fyrir ungt fólk og fjárfestingar. Um er að ræða nýtt starf á einstaklingsviði bankans. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Kristín Hildur hefur starfað á sviði Viðskiptalausna hjá Deloitte frá árinu 2018, en áður starfaði hún í fjárstýringu hjá Eimskip. Hún hefur lokið BSc gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og stundar nú MSc nám í fjármálahagfræði við sama skóla.
Þá er Kristín Hildur ein af meðlimum Fortuna Invest, sem er fræðsluvettvangur myndaður af hópi kvenna sem hafa lagt áherslu á fjölbreytileika á fjármálamarkaði með fræðslu. Hún er jafnframt ein höfunda bókarinnar Fjárfestingar sem kom út árið 2021, sem fjallar um fjármál og fjárfestingar fyrir byrjendur og lengra komna.