Sýn hefur ráðið Kristjönu Thors Brynjólfsdóttur í starf framkvæmdastjóra Miðla og efnisveitna. Kristjana hefur starfað hjá Sýn frá miðju ári 2023 sem þróunarstjóri sjónvarpslausna.

Sýn tilkynnti lok október um að öll fjölmiðlastarfsemi félagsins hafi verið sameinuð og kallast hið nýja svið, Miðlar og efnisveitur.

„Sviðið er mikilvægur hlekkur í rekstri Sýnar en þar fer fram öll framleiðsla á dagskrárefni hvort sem er í sjónvarpi, útvarpi og hlaðvarpi. Rekstur fréttastofu heyrir einnig undir sviðið en unnið er eftir skýrri ritstjórnarstefnu og heyrir ritstjóri frétta beint undir forstjóra,“ segir í tilkynningu Sýnar til Kauphallarinnar.

Áður en Kristjana hóf störf hjá Sýn hafði hún starfað hjá fyrirtækjum á borð við Warner Bros., Discovery og Viaplay Group. Þar sérhæfði hún sig meðal annars í stefnumótun, efniskaupum og markaðssetningu, auk stjórnun stafrænna umbreytingarverkefna.

„Það er gríðarlega spennandi að fá að taka þátt í þeirri vegferð sem Sýn er á. Styrkur fjölmiðla Sýnar er til vitnis um þá hæfileika, sköpunargáfu og ástríðu sem miðlarnir búa við. Þetta er mjög sterkur grunnur að byggja á þegar við tökumst saman á við að móta framtíð fjölmiðla í síbreytilegu landslagi,“ segir Kristjana.

„Við erum afar ánægð að fá Kristjönu Thors Brynjólfsdóttur til liðs við framkvæmdastjórn félagsins. Framkvæmdastjórnin er nú full mönnuð að teknu tilliti til breytinga á skipuriti Sýnar, sem tóku gildi 1. nóvember 2024. Kristjana hefur yfirgripsmikla alþjóðlega reynslu af fjölmiðlarekstri og stafrænni tækniþróun og mun styrkja yfirstjórn félagsins verulega. Við hlökkum til að vinna með Kristjönu að því að efla og þróa starfsemi fjölmiðlareksturs Sýnar og félagsins í heild enn frekar,“ segir Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar.