Kristjana Arnarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra. Hún hefur störf í dag og mun starfa ásamt Teiti Erlingssyni, sem er einnig aðstoðarmaður mennta- og barnamálaráðherra.

Hún er með B.A.-próf í mannfræði og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands og MSc-próf í markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Kristjana hefur síðastliðin átta ár starfað hjá RÚV sem íþróttafréttamaður og þáttastjórnandi. Hún hefur til fjölda ára stýrt umfjöllun á RÚV frá mörgum stórmótum í íþróttum, unnið við innlenda dagskrárgerð í sjónvarpi og var spyrill í spurningaþættinum Gettu betur frá 2019-2023.

Maki Kristjönu er Haraldur Franklín Magnús, atvinnukylfingur, og saman eiga þau eina dóttur, Rósu Björk, sem er tveggja ára.