Alvotech hefur ráðið Lindu Jónsdóttur í stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs. Linda, sem er stjórnarformaður Íslandsbanka, kemur til félagsins frá Sidekick Health þar sem hún starfaði sem aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri.

Þar áður var gegndi hún ábyrgðarstöðum fyrir Marel í 15 ár, þar á meðal sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs og framkvæmdastjóri rekstrarsviðs.

„Það er mér mikil ánægja að ganga til liðs við Alvotech sem er einstakt fyrirtæki á Íslandi og leiðandi í sínum geira alþjóðlega. Það hefur verið gaman að fylgjast með magnaðri uppbyggingu undanfarin ár og fram undan eru ekki síður spennandi tímar. Ég er full tilhlökkunar að kynnast nýju samstarfsfólki og vinna með þessu einvala liði að vexti og viðgangi félagsins,“ sagði Linda Jónsdóttir.

„Ég vil bjóða Lindu hjartanlega velkomna í framkvæmdastjórn Alvotech. Hún er með mikla leiðtogareynslu og hefur þegar stýrt fjármálum og rekstri félags með tvískráningu á hlutabréfamörkuðum. Við fögnum því að fá Lindu til liðs við okkur til að taka þátt í þeim mikla vexti sem fram undan er hjá Alvotech,“ sagði Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri.

Linda tekur við starfinu af Joel Morales sem hefur gegnt stöðu fjármálastjóra Alvotech frá árinu 2020. Í tilkynningu Alvotech til Kauphallarinnar segir að Morales hafi ákveðið að láta af störfum til þess að geta varið meiri tíma með fjölskyldunni og á heimaslóðum í Bandaríkjunum. Hann verði félaginu áfram til ráðgjafar og til halds og trausts við yfirfærslu verkefna á komandi vikum.

„Fyrir hönd Alvotech vil ég færa Joel innilegar þakkir fyrir framlag hans til félagsins undanfarin ár. Á þessu tímabili breyttist Alvotech úr óskráðu í skráð félag, byrjaði að skila hagnaði og er nú á góðri leið með að verða leiðandi fyrirtæki alþjóðlega í rannsóknum, þróun, framleiðslu og markaðssetningu á líftæknilyfjahliðstæðum,“ segir Róbert.