Már Másson hefur gengið til liðs við ráðgjafafyrirtækið Athygli og bætist samtímis í eigendahóp félagsins. Hann hefur víðtæka reynslu á sviði samskiptamála, stefnumótunar og rekstrar.

Undanfarið hefur Már starfað sem framkvæmdastjóri Fasteignasölunnar Mikluborgar og sem ráðgjafi við stefnumótun, rekstur og samskipti. Á árunum 2016-2022 starfaði Már hjá Bláa lóninu, lengst af sem framkvæmdastjóri viðskipta- og rekstrarsviðs.

Áður starfaði Már hjá Íslandsbanka og forvera hans, sem forstöðumaður samskiptamála, stafrænna dreifileiða og á skrifstofu bankastjóra. Þá var hann upplýsingafulltrúi Fjármálaeftirlitsins um skeið og viðskiptafulltrúi við sendiráðið í Kaupmannahöfn frá 2004-2006.

„Már mun spila veigamikið hlutverk í þeirri vegferð sem fram undan er hjá Athygli. Við höfum undanfarið lagt mikla vinnu í stefnumótun og þá þjónustu sem við viljum veita íslensku atvinnulífi, stjórnmálum, stofnunum og félagasamtökum,“ segir Kolbeinn Marteinsson, framkvæmdastjóri og ráðgjafi hjá Athygli.

Már er með B.Sc. gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn (CBS) og M.Sc. gráðu í stjórnun, samskiptum og stefnumótun frá háskólanum í Lugano í Sviss (USI).

„Ég er afar ánægður með að vera genginn til liðs við Athygli og hlakka til að vinna með því einvala liði sem starfar hjá fyrirtækinu. Athygli hefur á löngum starfstíma byggt upp sterkt orðspor sem grundvallast á vönduðum vinnubrögðum, ábyrgð og fagmennsku,“ segir Már.